Erlent

Morðkvendi í Mexíkó

Gunnar Valþórsson skrifar
Morðinginn kennir sig við veiðigyðjuna Díönu.
Morðinginn kennir sig við veiðigyðjuna Díönu.
Lögreglan í Mexíkó leitar nú að konu sem grunuð er um að hafa myrt tvo rútubílstjóra í borginni Ciudad Juares í síðustu viku.

Talið er að konan hafi verið að hefna fyrir kynferðisbrot en hún hefur sent dagblöðum í borginni tölvupósta og birt færslur á samfélagsmiðlum þar sem hún kallar sig veiðigyðja Díönu. Vitni segja að kona með ljósa hárkollu hafi komið inn í rúturnar, dregið upp skammbyssu og skotið mennina í höfuðið. Hún hafi síðan horfið inn í nóttina.

Í yfirlýsingum sínum segir morðinginn að fjöldi kvenna verði fyrir kynferðisofbeldi í rútunum, sem ferja vinnufólk frá borginni og til Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×