Bætist í hóp flóttamanna á 15 sekúndna fresti Þorgils Jónsson skrifar 3. september 2013 10:20 Tvær milljónir manna hafa flúið átökin í Sýrlandi. 5.000 manns bætast í hópinn á degi hverjum. Þessi piltur kom yfir landamærin til Tyrklands um helgina. NordicPhotos/AFP
Fjöldi flóttamanna frá Sýrlandi komst í dag upp fyrir tvær milljónir manna. Straumurinn út út landinu hefur þyngst stöðugt síðustu tólf mánuði eftir því sem átök harðna í borgarastyrjöldinni þar í landi, en fyrir réttu ári voru flóttamenn rúm 230.000 manns. 5.000 manns flýja land á degi hverjum sem jafngildir því að flóttamaður bætist í hópinn á um fimmtán sekúndna fresti. Antonio Guterres, yfirmaður flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir ástandið í Sýrlandi vera án fordæma á seinni tímum. Eina ljósið í myrkrinu sé viðbrögð nágrannaríkjanna sem hafa tekið við flóttamönnunum og bjargað þar með ótal mannslífum. Mikið starf felst í að sinna flóttafólkinu, sem móttökuríkin valda alls ekki og því er þörf á mikilli aðstoð. Hjálparsamtök sem vinna á svæðinu hafa innan við helming þeirra fjármuna sem þyrfti til að sinna grunnörfum bágstaddra í flóttamannabúðunum. Skrifstofur UNICEF (Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna) og Rauða krossins á Íslandi standa meðal annars fyrir söfnun til að aðstoða flóttafólk frá Sýrlandi Langflestir, eða um 97% dvelja í nágrannaríkjum Sýrlands. Um síðustu mánaðamót voru 110.000 í Egyptalandi, 168.000 í Írak, 515.000 í Jórdaníu, 716.000 í Líbanon og 460.000 í Tyrklandi. Rúmur helmingur flóttafólks eru börn, sautján ára eða yngri. Þess utan hafa vel á fimmtu milljón manns hrakist frá heimilum sínum og eru á vergangi innan Sýrlands. Þannig eru yfir sex milljónir Sýrlendinga á flótta, sem er meira en fyrirfinnst í nokkru örðu ríki.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Fleiri fréttir D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Sjá meira