Erlent

Castro fannst hengdur í klefa sínum

Gunnar Valþórsson skrifar
Ekki er talið að níðingnum hafi verið ráðinn bani heldur að hann hafi svipt sig lífi.
Ekki er talið að níðingnum hafi verið ráðinn bani heldur að hann hafi svipt sig lífi. AP
Mannræninginn og níðingurinn Ariel Castro, sem á dögunum var dæmdur í þúsund ára fangelsi fyrir hafa rænt þremur konum og haldið þeim föngnum í áratug, fannst hengdur í klefa sínum í ríkisfangelsinu í Ohio í gær.

Fangaverðir komu að Castro í snörunni og báru lífgunartilraunir engan árangur. Castro var hafður á gæsluvarðhaldsgangi þar sem verðir líta til með fanga á hálftíma fresti. Rannsókn er nú hafin á því hvernig honum tókst að binda enda á líf sitt en ekki er talið að honum hafi verið ráðinn bani.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×