Erlent

18 létust í sprengingu í Írak

Elimar Hauksson skrifar
Mannskæðar sprengingar sem þessar eru algengar í Írak
Mannskæðar sprengingar sem þessar eru algengar í Írak Mynd/AP
Tvö aðliggjandi hús í bænum Latifiya, skammt suður af Bagdad, voru sprengd nú í morgun með þeim afleiðingum að 18 létust.

Húsin voru í eigu sjía-múslima en þeir bjuggu þar ásamt fjölskyldum sínum. Samkvæmt AFP voru að minnsta kosti fimm konur og sex börn á meðal hinna föllnu.

Í síðustu viku féllu fimm manns í árás í þessum sama bæ en mannskæðar árásir eru daglegt brauð á þessu svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×