Erlent

Vegfarendur yfirbuguðu skartgripaþjófa

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Vegfarendur stöðvuðu för ræningjanna.
Vegfarendur stöðvuðu för ræningjanna.
Vegfarendur í bænum Louth í Bretlandi stöðvuðu för ræningja þar sem þeir voru á flótta eftir rán í skartgripaverslun bæjarins. Þetta kemur fram í frétt Daily Mail.

Mennirnir tveir, Christopher London 25 ára og Damion Clark 30 ára voru báðir dæmdir til fangelsisvistar í gær.

Ránið var framið í júní og skartgripaþjófarnir bjuggust eflaust ekki við því hugrekki sem eigandi verslunarinnar sýndi. Hún setti aðvörunarkerfi búðarinnar strax í gang og læsti þjófana inni. Þeir réðust að henni með hníf svo hún neyddist að endingu til þess að opna fyrir þeim.

En þá hafði ránið vakið athygli vegfarenda sem tóku lyklana úr mótórhjólinu sem ræningjarnir höfðu skilið eftir til að flýja á og veltu einnig hjólinu um koll. Ræningjarnir urðu því að flýja á tveimur jafnfljótum.

Clark hljóp að nærliggjandi bílastæði og reyndi að draga bílstjóra einnar bifreiðar úr bílnum. Sá brást hart við og gaf sig ekki jafnvel þó Clark stingi hann með hníf í andlitið.

London hljóp að skólabyggingu í nágrenninu og bað um að sér yrði hleypt inn.

Bæjarbúar náðu að yfirbuga hina óheppnu ræningja.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×