Fyrrverandi Bandaríkjaforsetar um ástandið í Sýrlandi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 30. ágúst 2013 23:00 Frá vinstri: George Bush yngri (forseti frá 2001 til 2009), Barack Obama (forseti frá 2009) og Jimmy Carter (forseti frá 1977 til 1981). samsett mynd
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir hernaðarlega íhlutun Bandaríkjamanna í Sýrlandi án stuðnings frá Sameinuðu þjóðunum vera ólöglega. Hann hvetur til friðarviðræðna í staðinn. Hann segir aðgerðirnar myndu brjóta alþjóðalög ef þær fengju ekki samþykki hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og Arababandalaginu, og telur forsetinn fyrrverandi að ólíklegt sé að hernaðaraðgerðir myndu breyta framgangi borgarastríðsins sem geysar í Sýrlandi. Þá hefur annar fyrrverandi Bandaríkjaforseti, George Bush yngri, tjáð sig um ástandið, og segir hann Barack Obama, núverandi forseta, standa frammi fyrir erfiðri ákvörðun. Hann bætti því við í samtali sínu við FOX-sjónvarpsstöðina að hann væri „ekki aðdáandi“ Bashars al-Assad. Að öðru leyti reyndi hann að tjá sig sem minnst um málið. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og mótframbjóðandi Bush í forsetakosningunum 2004, skýrði frá því í dag að efnavopnaárásin í úthverfum Damaskusborgar í síðustu viku hafi kostað 1.429 manns lífið, þar af að minnsta kosti 429 börn. Hann segir engan vafa leika á því að Sýrlandsstjórn hafi staðið að árásunum. Þremur dögum fyrir hana hafi menn á vegum stjórnarhersins verið á vettvangi að kanna aðstæður og undirbúa árásina. Obama hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann muni fyrirskipa árásir á Sýrland og í gærkvöldi hafnaði breska þingið tillögu David Camerons forsætisráðherra um hernaðaraðgerðir gegn Sýrlandsstjórn.
Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Sjá meira