Þjóðflokkur frumbyggja kemur úr einangrun Guðsteinn Bjarnason skrifar 20. ágúst 2013 09:24 Mashco-Piro þjóðflokkurinn í frumskógum Perú hefur unað sáttur við sitt þar til nú. Mynd/AP
Einangraður þjóðflokkur frumbyggja í Perú hefur gert vart við sig í annað skipti á tveimur árum, ósáttur við skógarhögg og smyglara á svæði sínu. Mashcu-Piro þjóðflokkurinn hefur unað sáttur við sitt án tengsla við umheiminn, en virðist nú ósáttur við ólöglegt skógarhögg, sem stundað hefur verið á svæði hans. Einnig hafa smyglarar farið þar um í óþökk frumbyggjanna. Þá hafa olíu- og gasleitarframkvæmdir á þessu svæði haft áhrif á íbúana. Meira en hundrað frumbyggjar hafa stigið fram, vopnaðir sveðjum og bogum og haft í hótunum við íbúa í litlu þorpi við ána Las Piedras. Náðst hefur myndband af frumbyggjunum vaða út í ána í áttina að þorpinu Monte Salvado, þar sem frumbyggjarnir eru komnir út í miðja á áður en þeir snúa við. Á myndbandinu sjást frumbyggjar af báðum kynum og á öllum aldri vaða út í ána. Þetta gerðist þrjá daga í röð. Þeir eru sagðir hafa krafist þess að fá banana, reipi og sveðjur, og verið bent á bananastæðu þeirra megin árinnar. Samkvæmt lögum í Perú er bannað að hafa samskipti við um 15 þjóðflokka, sem þar búa enn einangraðir frá umheiminum í skóglendi í hlíðum Andesfjalla. Talið er að alls búi þar um 12 til 15 þúsund manns.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira