Musharraf ákærður í Pakistan Guðsteinn Bjarnason skrifar 20. ágúst 2013 11:54 Pervez Musharraf, fyrrverandi forseti og herforingi í Pakistan. Mynd/AP
Pervez Musharraf, fyrrverandi forseti og herforingi í Pakistan, hefur verið ákærður fyrir aðild að morðinu á Benazir Bhutto forsætisráðherra árið 2007. Musharraf sneri aftur til Pakistans fyrr á þessu ári og gerði sér vonir um að geta endurnýjað stjórnmálaferil sinn og tekið þátt í kosningunum, sem haldnar voru í vor. Hann var hins vegar hnepptur í stofufangelsi stuttu eftir komuna til landsins. Musharraf komst upphaflega til valda í stjórnarbyltingu hersins árið 1999, en hrökklaðist frá völdum nærri áratug síðar. Ákvörðun saksóknara um að draga hann fyrir dómstól markar ákveðin tímamót í Pakistan, því aldrei áður hefur verið hróflað að ráði við valdamönnum innan hersins. Lögfræðingar hans segja ásakanirnar upplognar og ekki standast neina skoðun. Bhutto lét lífið í sprengju- og skotárás á kosningafundi í borginni Rawalpindi árið 2007. Hún var dóttir Zufikars Alis Bhutto, sem lengi var forsætisráðherra Pakistans. Hann var myrtur árið 1977 eftir að herinn hafði steypt honum af stóli. Dóttir hans naut mikillar virðingar í Pakistan. Hún hafði oft setið í fangelsi og flúði á endanum úr landi, en kom aftur eftir að hafa gert samning við Musharraf, sem gerði henni kleift að taka þátt í kosningum.
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Sjá meira