Erlent

Boða bjór án timburmanna

Bjór af krönum.
Bjór af krönum. Nordicphotos/AFP
Hópur ástralskra vísindamanna stærir sig þessa dagana af því að hafa fundið aðferð til að draga verulega úr timburmönnum að lokinni bjórdrykkju.

Aðferðin er sú að bæta nógu miklu af raflausn út í bjórinn, það er vökva sem leiðir rafstraum. Með þessu er unnið gegn vökvatapi sem fylgir bjórdrykkju og á stærstan þátt í timburmönnum.

Frá þessu er skýrt á áströlskum lyfjafréttavef sem heitir News-Medical.net.

Þar er haft eftir Ben Desbrow, vísindamanni við Griffith Health Institute, að þeir hafi gert tilraun með því að láta fólk prófa tvær tegundir af bjór, aðra sterka og hina veika. Út í báðar tegundirnar var bætt raflausn, og fólk ýmist látið drekka bjór með raflausn eða án hennar.

Raflausnarbætti léttbjórinn reyndist hafa minnsta timburmenn í för með sér, eða þriðjungi minni en hinar tegundirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×