Svanur drottningar finnst grillaður á bökkum Thames Kristjana Arnarsdóttir skrifar 21. ágúst 2013 21:36 Svanurinn hafði verið brunninn með fjöðrunum áföstum en kjötið var nánast allt horfið. Skjáskot
Svanur í eigu Englandsdrottningar fannst brunninn í vinsælum almenningsgarði í námunda við Windsor kastala í dag. Fuglinn hafði verið steiktur í hamnum en kjötið fjarlægt af hræinu. Það voru starfsmenn garðarins sem fundu hræið um klukkan þrjú að breskum tíma og hringdu þeir samstundis í hjálparlínu sem hugar að veikum og slösuðum fuglum sem finnast í kringum ána Thames. „Þeir voru bara í sínum hefðbundna göngutúr þegar þeir hringdu í okkur og sögðust hafa fundið eitthvað sem líktist grilluðum svani," sagði Wendy Hermon hjá hjálparlínunni í samtali við Sky News. „Þetta er algjör viðbjóður. Við höfum heyrt sögur af svona verknaði en við höfum aldrei séð þetta áður," bætti Wendy við. David Barber, sem sér um að halda utan um og merkja svani drottningarinnar, blöskraði atvikið og segir lögregluna vera að rannsaka málið. „Allir svanir eru álitnir konunglegir og fólk fær algjört áfall þegar það sér eitthvað þessu líkt á opnu svæði í almenningsgarði," sagði Barber, og bætti við að nánast allir svanir á bökkum Thames séu í eigu drottningarinnar. Hinir seku eiga yfir sér allt að sex mánaða fangelsi og um 5000 punda sekt þar sem svanir eru verndaðir fuglar. Barber segir þó að ef breska krúnan gengst við svaninum gætu hinir seku verið ákærðir skemma eign bresku krúnunnar. Þess má geta að á Íslandi eru svanir alfriðaðir.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Sjá meira