Erlent

Eftirlitsmenn SÞ fá að heimsækja Damaskus

Ákvörðun sýrlenskra stjórnvalda kemur stuttu eftir að bandarísk stjórnvöld höfðu lýst því yfir að þau væru nánast sannfærð um að herinn í Sýrlandi hefði beitt efnavopnum.
Ákvörðun sýrlenskra stjórnvalda kemur stuttu eftir að bandarísk stjórnvöld höfðu lýst því yfir að þau væru nánast sannfærð um að herinn í Sýrlandi hefði beitt efnavopnum. Mynd/AFP
Sýrlensk stjórnvöld hafa heimilað eftirlitsmönnum á vegum Sameinuðu þjóðanna að heimsækja svæðið rétt fyrir utan Damaskus þar sem efnavopnaárás var gerð á miðvikudaginn var.

Ákvörðun sýrlenskra stjórnvalda kemur stuttu eftir að bandarísk stjórnvöld höfðu lýst því yfir að þau væru nánast sannfærð um að herinn í Sýrlandi hefði beitt efnavopnum.

Uppreisnarmenn segja að sýrlenski herinn hafi drepið meira en 355 manns í árásunum. Sýrlensk stjórnvöld segjast hins vegar saklaus af árusunum og kenna „hryðjuverkamönnum“ um hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×