Erlent

Ritstjórar á Norðurlöndunum skrifuðu Cameron opið bréf

Hjörtur Hjartarson skrifar
Ritstjórar Politiken í Danmörku, Dagens Nyheter í Svíþjóð, Aftenposten í Noregi og Helsingin Sanomat í Finnlandi skrifuðu opið bréf til David Cameron, forsætisráðherra Bretlands sem birtist í The Observer í dag.

Tilefnið er handtaka og 9 klukkutíma yfirheyrsla breskra yfirvalda á David Miranda, kærasta Glenn Greenwald, blaðamanns The Guardian.

Í bréfinu hvetja ritstjórarnir Cameron til að grípa til aðgerða svo Bretland megi aftur vera í fararbroddi þjóða sem standa vörð um frelsi fjölmiðla.

Hegðun breskra yfirvalda undanfarnar vikur sé ógn við sjálfstæði fjölmiðla um heim allan og handtaka lögreglunnar á Miranda hafi verið kornið sem fyllti mælinn.

Þá gagnrýna ritstjórarnir Cameron harðlega fyrir að styðjast við hryðjuverkalög til að áreita og hræða blaðamenn sem og aðila þeim tengdum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×