Erlent

Andar köldu milli Brasilíu og Bólivíu

Gunnar Valþórsson skrifar
Antonio Patriota er hættur störfum.
Antonio Patriota er hættur störfum.
Utanríkisráðherra Brasiliíu, Antonio Patriota hefur látið af störfum. Það gerir hann í kjölfar þess að mjög andar nú köldu á milli Brasilíumanna og Bólivíu.

Upphaf málsins má rekja til þess að Bólivískur stjórnarandstæðingur, sem hafði leitað skjóls í brasilíska sendiráðinu í La Paz höfuðborg Bólivíu í rúmt ár, flúði land á dögunum í bíl frá sendiráðinu. Hann naut aðstoðar brasilísks sendiráðsstarfsmanns en hafði hvorki leyfi til að yfirgefa landið frá Bólivískum stjórnvöldum, né leyfi til að koma inn í Brasilíu frá mönnum þar á bæ. Eftir kröftug mótmæli frá Bólivíu ákvað forseti Brasilíu Dilma Roussef að Patriota skyldi settur af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×