Erlent

Breskir starfsmenn húðlatir og óhæfir

Jakob Bjarnar skrifar
Oliver og kona hans Jools en meistarakokkurinn heldur því fram að án innflytjenda myndi veldi hans hrynja.
Oliver og kona hans Jools en meistarakokkurinn heldur því fram að án innflytjenda myndi veldi hans hrynja.
Meistarakokkurinn Jamie Oliver hefur valdið nokkrum usla á Bretlandseyjum með ummælum sem hann lét falla í nýlegu viðtali í tímaritinu Good Houskeeping í þá átt að breskir starfsmenn séu upp til hópa húðlatir og óhæfir.

The Daly Mailgreinir frá málinu. Oliver heldur því fram að án innflytjenda í starfsliði sínu þyrfti hann að loka veitingastöðum sínum. Oliver sjálfur vann sig upp frá úr eldhúsi föður síns sem rak krá í Essex og rekur nú veitingastaði víðsvegar um Bretland þar sem starfa liðlega 350 matreiðslumenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×