Dæmdur í lífsstíðarfangelsi eða til dauða? Boði Logason skrifar 28. ágúst 2013 11:55 Nidal Hasan, starfaði sem læknir hjá bandaríska hernum áður en hann skaut félaga sína til bana. Mynd/afp
Dómur verður kveðinn upp í dag yfir fjöldamorðingjanum og geðlækninum Nidal Hasan, sem myrti þrettán og særði þrjátíu og tvo, í Fort Hood, stærstu herstöð Bandaríkjanna árið 2009. Réttarhöldin hafa staðið yfir í á annað ár fyrir herrétti. Dómarinn hefur þegar komist að því að Hasan er sekur um morð af yfirlögðu ráði. Í dag ræðst það hvort að hann verði dæmdur til dauða eða fái lístíðarfangelsi. Fréttaskýrendur vestanhafs segja að miklar líkur séu á að hann verði dæmdur til dauða, sérstaklega í ljósi þess að hann er ekki með lögmann og ver sig sjálfur. Og þó er varla hægt að segja það, því hann hefur lítið sem ekkert tjáð sig um ástæðu þess að hann hóf skothríðina fyrirvaralaust. Hasan, sem er múslimi, starfaði sem læknir í bandaríska hernum. Áður en hann hóf skothríðina á félaga sína í herstöðinni öskraði hann Allah Akbar, eða Allah er mestur. Við yfirheyrslur hjá lögreglu sagðist hann vilja vernda Talíbana fyrir hermönnum í bandaríska hernum. Hann særðist í skotbardaga við lögreglu, og er nú lamaður frá brjósti og niðurúr. Á þriðjudaginn komu ættingjar hinna látnu fyrir dóminn og ávörpuðu fjöldamorðingjann. Móðir tuttugu og níu ára hermanns, sem féll fyrir hendi Hasan, sagðist ekki geta lýst því tómarúmi sem myndast í hjarta móður sem missir barnið sitt. Hún þurfi að lifa með því á hverjum degi. Faðir annars hermanns sagði að sársaukinn sem hann hefði upplifað síðustu mánuði og ár væri svo gífurlegur. Hann hefði drukkið ótæpilega og vinir hans hefðu tekið allar byssur af heimili hans - af ótta við að hann myndi vinna sjálfum sér mein. Á meðan á þessum vitnaleiðslum stóð yfir sýndi Hasan engin viðbrögð - heldur starði út í loftið. Það skýrist síðdegis hvort að Hasan verði dæmdur til dauða eða fái lífstíðarfangelsi.
Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Maður féll í Ölfusá Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Fleiri fréttir Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Sjá meira