Erlent

Obama tvístígandi vegna Sýrlands

Gunnar Valþórsson skrifar
Ástandið í Sýrlandi vefst fyrir leiðtogum heimsins.
Ástandið í Sýrlandi vefst fyrir leiðtogum heimsins.
Barack Obama Bandaríkjaforseti segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann ætli að fyrirskipa árásir á Sýrland.

Í viðtali á sjónvarpsstöðinni PBS í gærkvöldi sagðist hann þó fullviss um að það hefðu verið sýrlensk stjórnvöld sem stóðu fyrir efnavopnaárásinni í úthverfi Damaskus á miðvikudag í síðustu viku. Þá sagðist hann þeirrar skoðunar að hernaðaríhlutun Bandaríkjamanna gæti haft jákvæð áhrif á þróun mála í borgarastyrjöldinni í Sýrlandi.

Bretar reyndu í gær að fá ályktun samþykkta í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem myndi veita heimild til þess að skerast í leikinn í Sýrlandi en Rússar beittu neitunarvaldi sínu eins og búist hafði verið við. Engar sannanir hafa enn verið settar fram sem sýna að Assad forseti og menn hans hafi staðið fyrir efnavopnaárásinni og vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna segjast þurfa fjóra daga til viðbótar til þess að ljúka rannsóknum sínum á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×