Henti Óla Þórðar út í skurð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. ágúst 2013 11:30 Mynd/Samsett „
Ég sagði honum að ef hann reyndi þetta aftur þá fengi hann að finna fyrir því," segir knattspyrnuþjálfarinn Guðjón Þórðarson. Guðjón var í spjalli í Reitaboltanum á vefsíðunni 433.is í dag. Þar rifjaði Guðjón um gamla tíma og minntist þess þegar ungur Ólafur Þórðarson, sem í dag þjálfar Víking í 1. deild, var ákafur á æfingum Skagamanna. Eitt sinn voru Skagamenn á æfingu og voru að æfa framhjá hlaup. Kom það í hlut Ólafs, sem lék lengst af á miðju eða kanti, að elta Guðjón sem var grjótharður varnarmaður. „Óla þótti erfitt að elta kallinn," segir Guðjón. Hann segir Ólaf því hafa stigið í veg fyrir sig sem þjálfarinn reyndi virðist hafa haft lítinn húmor fyrir. „Ég sagði honum að ef hann reyndi þetta aftur þá fengi hann að finna fyrir því," rifjar Guðjón upp að hafa sagt við Ólaf sem leit sér ekki segjast. „Það var drenskurður við hliðina á æfingasvæðinu," segir Guðjón og bætir við að hann hafi verið fullur af slími og drullu. „Ég lét hann fjúka í skurðinn. Ég gleymi aldrei svipnum á Óla þegar hann féll," segir Guðjón. Hann bætir við að menn hafi verið fljótir að hrista ágreininginn af sér og málið hafi haft farsælan endi. Guðjón spilaði einn landsleik á ferlinum þegar Ísland mætti Færeyjum á Akranesi. „Þeir (innsk: landsleikirnir) áttu að vera fleiri en það er eins og þar var. Ég held ég hafi ekki verið í uppáhaldi hjá þeim sem réðu í Laugardalnum," segir Guðjón. Hann var aldrei þessu vant settur í stöðu vinstri bakvarðar en spilaði allajafna hægra megin í vörninni. „Ég kunni Guðna Kjartanssyni (landsliðsþjálfara) litlar þakkir fyrir það. Ég held að þetta hafi verið greiði að gefa mér einn landsleik áður en yfir lauk."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Fleiri fréttir „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Sjá meira