Erlent

Einelti á samskiptamiðlum eykst

MYND/GETTY
Eitt af hverjum fimm börnum í Bretlandi verður fyrir aðkasti og einelti á samskiptamiðlum.

Þetta er niðurstaða rannsóknar bresku barnaverndarsamtakanna NSPCC.

Rannsóknarmenn horfðu til almenns eineltis, kynferðislegra skilaboða og fleira sem börn og ungt fólk upplifir á miðlum á borð við Facebook, Instagram og Twitter.

Í niðurstöðunum kemur jafnframt fram að stór hópur notenda á Facebook séu börn undir 13 ára aldri.

Alls tóku eitt þúsund börn þátt í rannsókninni en hún fór fram í nóvember á þessu ári.

Það er breska ríkisútvarpið sem greinir frá þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×