Erlent

Fluttur úr þrælabúðum í Norður-Kóreu á spítala

Bandaríski trúboðinn Kenneth Bae er alvarlega veikur og hefur verið fluttur úr þrælabúðum í Norður-Kóreu á spítala.

Bae, sem var dæmdur í fimmtán ára fangelsi fyrr á þessu ári, hefur greinst með hjartastækkun og sykursýki. Fjölskylda Bae óttast mjög um heilsu hans og segir systir hans að hann sé of veikur til að vinna.

Bandarísk stjórnvöld hafa biðlað til stjórnvalda í Norður-Kóreu um að leysa Bae úr haldi. Bae, sem gengur undir nafninu Pae Jun-ho, kom til Norður-Kóreu sem ferðamaður í maí síðastliðnum en var handtekinn og dæmdur fyrir að leggja á ráðin gegn stjórnvöldum þar í landi.

Hann var sakfelldur fyrir að nota ferðaþjónustufyrirtæki sem hann rekur til að mynda hópa sem steypa áttu stjórnvöldum í Norður-Kóreu af valdastóli.

Terri Chung, systir Bae, segir að sænskur erindreki hafi heimsótt Bae fyrir skömmu og að hann liggi nú inni á spítala.

Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa handtekið þó nokkra bandaríska ríkisborgara á undanförnum árum og sakað þá um trúboð. Þeim var þó sleppt úr haldi eftir að háttsettir embættismenn frá Bandaríkjunum, þar á meðal forsetarnir fyrrverandi Bill Clinton og Jimmy Carter, heimsóttu Pyongyang höfuðborg Norður-Kóreu og ræddu við ráðamenn þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×