Brutust aftur inn og skiluðu þýfinu Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. ágúst 2013 21:54
Innbrotsþjófar létu greipar sópa á skrifstofu í borginni San Bernandino í Kaliforníu og höfðu á brott með sér sex borðtölvur og fartölvu. En þegar þeir gerðu sér grein fyrir því að skrifstofan var í raun þjónustumiðstöð fyrir þolendur kynferðisofbeldis komu þeir aftur með tölvurnar og skiluðu þeim. „Við erum enn í sjokki,“ segir Candy Stallings, yfirmaður þjónustumiðstöðvarinnar, en hún fékk símtal frá öryggisþjónustufyrirtæki um hálfellefuleytið að kvöldi 31. júlí þar sem henni var sagt að þjófavarnakerfið hefði farið í gang og lögreglan væri á leiðinni. Þegar Stallings kom á staðinn fékk hún þær upplýsingar frá lögreglu að innbrotsþjófar hefðu brotið sér leið inn á skrifstofuna í gegn um þakið. Skemmdirnar sem þeir ollu við innbrotið eru metnar á því sem nemur rúmlega hálfri milljón króna. „Við héldum að við myndum aldrei jafna okkur á þessu. Hver einasta tölva sem við eigum er starfi okkar svo mikilvæg,“ bætir Stallings við. Eftir að lögregla fór af vettvangi fór Stallings aftur heim og reyndi að sofa. Nokkrum klukkustundum síðar fékk hún annað símtal, og nú frá lögreglunni, um það að öryggiskerfið hefði greint mannaferðir. En þegar á staðinn var komið kom í ljós að þjófarnir höfðu brotist inn aftur og skilað öllum tölvunum til baka. Einnig höfðu þeir skilið eftir afsökunarbeiðni á miða. „Við höfðum ekki hugmynd um hverju við vorum að stela,“ sagði í bréfinu. „Hér er dótið ykkar og vonandi getið þið haldið áfram að láta gott af ykkur leiða. Guð blessi ykkur.“ Stallings segist hafa fengið gæsahúð við lestur bréfsins. „Eina mínútu var allt dótið horfið og þá næstu var það allt komið til baka. Þeir sem brutust inn fengu bakþanka. Þeir höfðu einhverja samkennd.“ Til stendur að ramma afsökunarbeiðnina inn á skrifstofunni og hefur saga þjónustumiðstöðvarinnar vakið mikla athygli. Þá hefur fjöldi fólks lagt sitt af mörkum við að bæta tjónið sem hlaust af innbrotinu með fjárframlögum.
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Fleiri fréttir Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Sjá meira