Erlent

Ákærður stríðsglæpamaður úr Helförinni lést í fangelsi

Þorgils Jónsson skrifar
Laszlo Csatary var ákærður fyrir stríðsglæpi í júní síðastliðnum, en lést á laugardag, áður en málaferli yfir honum hófust.
Laszlo Csatary var ákærður fyrir stríðsglæpi í júní síðastliðnum, en lést á laugardag, áður en málaferli yfir honum hófust. NordicPhotos/AFP
Laszlo Csatary, Ungverji sem var ákærður fyrir að hafa tekið þátt í Helför nasista gegn gyðingum, lést um helgina, 98 ára að aldri, af völdum lungnabólgu. BBC segir frá þessu á vef sínum í dag.

Csatary var á sínum tíma efstur á lista eftirlýstra fyrrum stríðsglæpamanna úr seinni heimsstyrjöldinni. Hann var talinn hafa aðstoðað við að senda 15.700 gyðinga frá Hungverjalandi og Slóvakíu í útrýmingarbúðir nasista, auk þess sem hann var sakaður um að beita fanga beinu ofbeldi.

Hann var handtekinn í júlí í fyrra og var í haldi alla tíð síðan.

Í stríðslok var Csatary dæmdur til dauða í Tékkóslóvakíu fyrir stríðsglæpi, en hann flúði til Kanada þar sem hann sagðist vera flóttamaður frá Júgóslavíu. Þar bjó hann í tæpa hálfa öld og starfaði meðal annars sem listaverkasali.

Eftir að upp komst um ósannsögli hans var hann sviptur ríkisborgararétti árið 1997 og flúði land. Hann fór síðan huldu höfði þar til hann fannst á ný í fyrra.

Csatary neitaði sök í málinu.

Efraim Zuroff, framkvæmdastjóri Simon Wiesenthal-stofnunarinnar, sem leitar stríðsglæpamanna nasista um allan heim, lýsti í tilkynningu, yfir vonbrigðum sínum með andlát Csatarys.

„Það er leitt að Csatary, sem var dæmdur fyrir glæpi í Helförinni og hafði aldrei sýnt iðrun en var loks ákærður í eigin heimalandi, hafi sloppið undan réttvísinni og refsingu á síðustu stundu.“

Simon Wiesenthal-stofnunin starfar enn af krafti við að hafa upp á eftirlifandi gerendum úr Helförinni og hleypti nýlega af stokkunum verkefni þar sem þeir bjóða verðlaun fyrir upplýsingar sem geta leitt til handtöku.

Meðal þeirra sem helst er leitað að er Alois Brunner, sem var aðstoðarmaður Adolfs Eichmann og sást síðast í Sýrlandi árið 2001, og Aribert Heim sem var læknir í þremur útrýmingarbúðum og hvarf árið 1962. Síðast fréttist af honum í Egyptalandi árið 1992.

Listi Wiesenthal-stofnunarinnar um eftirlýsta stríðsglæpamenn nasista




Fleiri fréttir

Sjá meira


×