Erlent

Hundrað þúsund vilja búa á mars

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Svona er umhorfs á mars.
Svona er umhorfs á mars. Nordicphotos/AFP
Meira en hundrað þúsund manns hafa sótt um að fá að fara til mars og búa þar til æviloka. Stefnt er að því að þeir fyrstu fari þangað árið 2022.

Fréttastöðin CNN skýrir frá þessu.

Það er hollenski auðkýfingurinn Bas Lendorp sem er í forystu fyrir þessum áformum. Áætlað er að fyrsta ferðin til mars kosti sex milljarði dala, eða jafnvirði um 750 milljarða króna.

Að sögn CNN segir Lendorp að síðar á þessu ári verði 40 manns valdir úr þessum hundrað þúsund manna hópi. Fjórir þeir fyrstu fari, sem fyrr segir, árið 2022, en síðan fari fjórir í viðbót á tveggja ára fresti.

Þátttakendur verða að vera orðnir 18 ára og þurfa að greiða þátttökugjald, sem er misjafnlega hátt eftir því frá hvaða landi þeir koma.

Bandaríska geimferðastofnunin NASA hefur varað við því að geislun á mars geti verið of mikið til þess að fólk geti dvalið þar langtímum saman. Hámarksdvöl sé um 500 dagar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×