Erlent

Viðurkenna að Svæði 51 sé til

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd / satelite.com
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur nú loks viðurkennt opinberlega að hið svokallaða Area 51 eða Svæði 51 sé í raun og veru til.

Svæðið er staðsett um 100 mílum norður af Las Vegas í Mojave eyðimörkinni. Marg oft hefur verið greint frá svæðinu í fjölmiðlum og er um að ræða leynilega herstöð á vegum bandaríska hersins.

Í skjali sem var birt á vefnum á fimmtudaginn er staðfest að svæði 51 sé í raun til.

Síðustu áratugi hafa samsæriskenningamenn haldið því fram að svæðið sé tileinkað rannsóknum á geimverum sem hafa lent á jörðinni. Það hefur aftur á móti ekki verið staðfest.

Bandaríski herinn sér um rekstur herstöðvarinnar en þar hafa rannsóknir og þróunarstarf herþotunnar U-2, sem er einskonar njósnavél sem sést ekki á radar, farið fram. Njósnaþotur Bandaríkjahers lenda iðulega á flugvellinum á Svæði 51.

Lögmaður bandaríska flughersins sagði undir eið í rétti árið 1995 að stöðin sem væri staðsett nálægt Las Vegas hefði ekkert sérstakt nafn og Svæði 51 væri ekki til.

Árið 1995 kom upp mál þar sem starfsfólk við Svæði 51 höfðuðu mál gegn bandaríska ríkinu en þeir vildu meina að eiturefni  á svæðinu hefðu ollið miklum veikindum í hópnum.  Sumir þeirra létust sökum veikindanna.

Mennirnir máttu ekki tala um verkefnin innan svæðisins og höfðu skrifað undir þagnarskyldu en þeir héldu fram að ýmiskonar tilraunir á flugbúnaði og öðru hefði ollið því að þeir veiktust illa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×