Yfir 4 bollar af kaffi á dag auka líkur á ótímabærum dauða Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 18. ágúst 2013 14:30 Deilt er um hvaða áhrif kaffi hefur á heilsuna.
Yfir fjórir bollar af kaffi á dag geta hækkað líkurnar á ótímabærum dauða hjá ungu fólki að sögn sérfræðinga. Rannsóknin var birt í læknaritinu Mayo Clinic Proceedings. Kaffi er ómissandi þáttur í daglegu lífi fjölda fólks í heiminum en lengi hefur verið deilt um ágæti þess fyrir heilsuna. Sérfræðingarnir, sem rannsökuðu kaffineyslu 43,727 einstaklinga á 16 árum, komust að því að líkurnar á ótímabærum dauða hækkuðu um helming ef drukknir eru 28 kaffibollar á dag. Aðeins þó hjá einstaklingum undir 55 ára aldri. Svo mikil kaffineysla hefur að sögn sérfræðingana mikil áhrif á efnaskipti líkamans og jukust líkurnar á dauða um 56 prósent hjá karlmönnum og 55 prósent hjá konum. „Af rannsókn okkar að dæma virðist vera í lagi að drekka einn til þrjá bolla af kaffi á dag,“ sagði annar höfunda rannsóknarinnar Xuemei Sui í samtali við USA Today. „Að drekka meira en fjóra bolla á dag getur haft lífshættuleg áhrif.“ Sui, sem starfar sem aðstoðarprófessor í heilsuvísindum við Háskólann í Suður-Karólínu, segir einn bolla vera um 200 millilítra. Hvað veldur aukinni dánartíðni hjá ungum einstaklingum er ekki fyllilega ljóst en Sui segir að koffínið hraði á hjartslætti, hækki blóðþrýsting og blóðsykur. Rannsóknin er ekki í samræmi við fjölda annarra nýlegra rannsókna þar sem niðurstöðurnar hafa verið þær að hófleg kaffineysla geti haft jákvæð áhrif á langlífi. Dr. Euan Paul, framkvæmdastjóri Bresku kaffisamtakanna (e. British Coffee Association), sagði að rannsóknin hefði verið takmörkuð sem að gæti hafa skekkt niðurstöðurnar. Hann segir notkun spurningalista ónákvæma þar sem fólk á gjarnan erfitt með að rifja upp hversu marga bolla það drakk yfir vikuna. Einnig hefur komið í ljós að þeir sem drekka meira kaffi virðast einnig reykja meira og vera almennt í verra formi. „Fjölmargar rannsóknir benda til þess að kaffi sé fullkomlega öruggt til neyslu þegar það er drukkið hóflega, um fjóra til fimm bolla á dag, og sem hluti af heilbrigðu mataræði,“ fullyrti hann.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Sjá meira