Tugir fórust með farþegaferju í Filippseyjum Þorgils Jónsson skrifar 18. ágúst 2013 14:52 Roderick Mama beið frétta af konu sinni og sonum sem voru í ferjunni Thomas Aquinas sem sökk í nótt út af Filippseyjum. Að minnsta kosti 39 létust og rúmlega 80 er enn saknað úr slysinu. Mynd/AP
Að minnsta kosti 39 hafa látist og hátt í 90 er enn saknað eftir að ferþegaferja sökk undan ströndum Filippseyja í nótt eftir árekstur við flutningaskip. Sjóslys sem þessi eru algeng í Filippseyjum vegna ýmissa samverkandi þátta; veður eru oft viðsjárverð á þessum slóðum auk þess sem ástandi skipaflotans er víða ábótavant og opinbert eftirlit er afar veikt.Alls voru 870 um borð í Thomas Aquinas sem var að sigla inn til borgarinnar Cebu á leiðinni til höfuðborgarinnar Manila, sem er um 350 sjómílur sunnar, þegar ósköpin dundu yfir. Aðstæður voru góðar, sjórinn var sléttur og ljósin frá landi sáust í fjarska þegar skipin skullu saman með þeim afleiðingum að gat rifnaði á skrokk Thomas Aquinas, sem fór á hliðina og sökk skömmu síðar. Fylkisstjórinn í Cebu, Hilario Davide að nafni, sagði í samtali við AP-fréttaveituna að 751 hafi verið bjargað, en ekkert benti til þess að fleiri myndu finnast á lífi. Hann vildi þó ekki gefa upp alla von. Óhappið bar að með þeim hætti að flutningaskipið var á leið frá höfninni í Cebu og klessti á afturhluta ferjunnar. Aðstæður í innsiglingunni eru með þeim hætti að skip á leiðinni inn er gert að fara öðru megin inn en skipum á úteið hinum megin. Samgönguráðherra Filippseyja, Joseph Abaya, sagði í viðtali að ljóst þætti að annað skipið hafi farið út fyrir sína siglingaleið, en rannsókn stendur yfir. Mannskæðasta sjóslys á friðartímum varð út af ströndum Filippseyja árið 1987, þegar ferjan Dona Paz fórst eftir árekstur við olíuskip, og með henni 4.341 manns.
Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Segir ótímabært að ræða undanþágur Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Sjá meira