Erlent

Tvö lönd stóðu með Færeyingum

Færeyingjar hafa verið gagnrýndir fyrir ofveiði á makríl rétt eins og Íslendingar.
Færeyingjar hafa verið gagnrýndir fyrir ofveiði á makríl rétt eins og Íslendingar.
Aðeins tvö lönd, Danmörk og Búlgaría, greiddu atkvæði gegn refsiaðgerðum Evrópusambandsins gegn Færeyingum vegna makrídeilunnar.

Færeyingar fá ekki að landa makríl í höfnum Evrópusambandsins og færeyskum bátum sem flytja makríl verður ekki leyft að nota hafnirnar.

Danski þingmaðurinn Soren Espersen segir tilhugsunina um að dönsk yfirvöld neiti færeyskum skipum aðgangi að höfnum landsins vera óþolandi. Það spilli sambandi ríkjanna sem hefur verið gott í 800 ár. Þá krefst hann þess að dönsk yfirvöld láti Evrópusambandið vita af því að Danmörk muni aldrei taka þátt í refsiaðgerðum gegn Færeyingum.

Evrópusambandsstjórnin á eftir að fjalla formlega um refsiaðgerðirnar, en þær gætu tekið gildi í lok ágúst eða í september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×