Erlent

Kyrkislanga varð tveimur drengjum að bana

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Drengirnir tveir, Connor (t.v.) og Noah Barthe.
Drengirnir tveir, Connor (t.v.) og Noah Barthe.
Kyrkislanga varð tveimur drengjum að bana í kanadísku borginni Campbellton í fyrrinótt.

Drengirnir sem voru fimm og sjö ára bræður, voru sofandi heima hjá vini sínum og talið er að slangan hafi sloppið úr búri í gæludýraverslun á jarðhæð hússins.

Þaðan hafi hún skriðið inn í loftræstikerfi hússins og yfir í íbúðina þar sem hún kæfði drengina. Lögreglumenn náðu slöngunni, en hún er sögð um fjórir og hálfur metri að lengd og um 45 kíló.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×