Erlent

Kærastan sagði nei

Það fyrsta sem þú þarft að gera áður en þú ferð á skeljarnar á almannafæri er að vera alveg viss um að kærastan segi já.

Það var ekki alveg tilfellið hjá ungum manni á hafnaboltaleik í Connecticut í Bandaríkjunum í síðustu viku.

Kynnirinn á vellinum fékk parið til sín og því næst var bónorðið borið upp fyrir framan mörg þúsund manns.

„Viltu giftast mér Jessica?" spurði hann áður en hann fór á skeljarnar. Áhorfendur á vellinum fögnuðu ákaft eða þar til Jessica sagðist ekki geta gifst honum. „David, því miður en ég get það ekki.“

Á því augnabliki hóf kynnirinn að hlæja. „Fyrirgefðu, ég ætla ekki að hlæja David. Ég held að þetta hafi aldrei gerst áður.“

Kærastan hljóp svo í átt að stúkunni en kærastinn í búningsklefann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×