Erlent

Bretum fjölgar hraðast allra ESB-þjóða

813.200 börn fæddust í Bretlandi frá júní 2011 til júní 2012.
813.200 börn fæddust í Bretlandi frá júní 2011 til júní 2012. Nordicphotos/AFP
Um mitt síðasta ár voru Bretar orðnir 63,7 milljónir, og hafði þá fjölgað um 419.900 frá miðju ári 2011. Bretum hefur því fjölgað hraðar en nokkurri annarri þjóð í Evrópusambandinu.

Fæðingar í Bretlandi hafa auk þess ekki verið fleiri síðan 1972, eða 813.200 á tímabilinu frá júní 2011 til júní 2012.

Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum frá bresku hagstofunni, Office for National Statistics, sem BBC skýrir frá.

Frökkum fjölgaði á fyrrgreindu tímabili um 319.100, en Þjóðverjum um 166.200. Bretar eru sem fyrr þriðja fjölmennasta þjóð Evrópusambandsins, en Þjóðverjar eru fjölmennastir, alls 80,4 milljónir, og Frakkar næstfjölmennastir, alls 65,5 milljónir.

Þá hefur íbúum London fjölgað um 104 þúsund manns á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×