Erlent

Ashton ræddi við Morsí

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Catherine Ashton á fundi með Múhamed Morsí fyrr í sumar.
Catherine Ashton á fundi með Múhamed Morsí fyrr í sumar. Mynd/AP
Catherine Ashton, utanríkisfulltrúi Evrópusambandsins, hitt Múhamed Morsí í morgun, ræddi við hann í tvær klukkustundir og segir hann „hafa það gott” í stofufangelsinu.

Hún sagðist þó ekki vita nákvæmlega hvar hann væri hafður í haldi. Hún vildi heldur ekki hafa neitt eftir honum, sagðist ekki vilja „leggja honum orð í munn.”

Egypski herinn steypti Morsí forseta og stjórn hans af stóli í byrjun júlí. Hann hefur verið í stofufangelsi síðan.

Ashton segir hann hafa aðgang að sjónvarpi og dagblöðum. Hann geti því fylgst með því sem er að gerast og þau hafi rætt málin ítarlega.

Mannskæð átök hafa ítrekað brotist út í Egyptalandi á síðustu vikum, nú síðast á laugardag þegar 70 manns létu lífið eftir að herinn lagði til atlögu gegn stuðningsmönnum Morsís.

Stuðningsmenn Morsís krefjast þess enn að hann fái forsetaembættið aftur. Þeir hafa ekki orðið við kröfum hersins um að þeir hætti mótmælum sínum, heldur hafa boðað til fjölmennra mótmæla síðar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×