Erlent

Manning sýknaður af ákæru um að aðstoða óvini Bandaríkjanna

Haukur VIðar Alfreðsson skrifar
Manning hefur verið í fangelsi í þrjú ár og hefur viðurkennt að hafa lekið hundruðum þúsunda leynilegra skjala meðan hann var hermaður í Írak.
Manning hefur verið í fangelsi í þrjú ár og hefur viðurkennt að hafa lekið hundruðum þúsunda leynilegra skjala meðan hann var hermaður í Írak.
Herdómstóll í Bandaríkjunum hefur sýknað uppljóstrarann Bradley Manning af ákæru fyrir að hafa aðstoðað óvini Bandaríkjanna. Lífstíðarfangelsi lá við ákærunni.

Hann er hins vegar sakfelldur fyrir 20 ákæruliði af samtals 22, þar á meðal í fimm ákæruliðum um njósnir og öðrum fimm fyrir þjófnað.

Manning hefur verið í fangelsi í þrjú ár og hefur viðurkennt að hafa lekið hundruðum þúsunda leynilegra skjala meðan hann var hermaður í Írak.

Refsing yfir Manning verður kunngjörð á morgun, en hann er sagður geta átt yfir höfði sér allt að 136 ára fangelsi fyrir þá ákæruliði sem hann var sakfelldur fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×