Erlent

Þyngsti nýburi Þýskalands

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Jasleen heilsast vel en verður áfram á spítalanum fyrst um sinn.
Jasleen heilsast vel en verður áfram á spítalanum fyrst um sinn.
Þyngsti nýburi Þýskalands fæddist á föstudag á háskólasjúkrahúsinu í Leipzig. Það var hún Jasleen, en hún vó tæpar 25 merkur (rúm 6 kíló) og var ekki tekin með keisaraskurði.

Stærð barnsins er sögð stafa af ógreindri meðgöngusykursýki móðurinnar en að sögn Der Spiegel heilsast bæði móður og barni vel. Jasleen verður þó áfram á spítalanum fyrst um sinn.

Jasleen er þó ekki þyngsta barn sem fæðst hefur á árinu. Það var enskur drengur að nafni George King sem vó tæpar 29 merkur við fæðingu og fæddist einnig með venjulegum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×