Erlent

Helen Thomas látin

Thomas er af mörgum talinn brautryðjandi fyrir konur í fjölmiðlum.
Thomas er af mörgum talinn brautryðjandi fyrir konur í fjölmiðlum. mynd/afp
Bandaríska blaðakonan, Helen Thomas er látin, 92 ára að aldri.

Thomas var einn þekktasti stjórnmálablaðamaður Bandaríkjanna og er af mörgum talinn brautryðjandi fyrir konur í fjölmiðlum. Hún starfaði sem blaðamaður í Hvíta húsinu í fimm áratugi og þótti afar hörð í horni að taka. Tíu forsetar komu og fóru um hvíta húsið á meðan Thomas starfaði þar.

Blaðamannaferill hennar fékk þó heldur skjótan endi í júní 2010 þegar hún sagði að gyðingar ættu að hypja sig frá Palestínu heim til Póllands, Þýskalands og Bandaríkjanna. Hún sagði síðar að hún harmaði mjög þessi orð sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×