Erlent

Öflugur jarðskjálfti á Nýja Sjálandi

Jóhannes Stefánsson skrifar
Fólk í Wellington kannar sprungu sem myndaðist í skjálftanum.
Fólk í Wellington kannar sprungu sem myndaðist í skjálftanum. AFP
Jarðskjálfti að stærðinni 6,9 á Richter reið yfir Nýja Sjáland nú í morgun.

Engar fregnir hafa borist af slysum á fólki en einhverjar skemmdir urðu á mannvirkjum og til að mynda urðu skemmdir á þinghúsinu í Wellington.

Upptök skjálftans voru um 57 kílómetra sunnan við Wellington á 10 kílómetra dýpi.

Engin flóðbylgjuviðvörun var gefin út vegna skjálftans, sem var sá stærsti í skjálftahrinu sem hefur gengið yfir eyjuna seinustu daga.

Nýja Sjáland liggur á flekamörkum og skjálftavirkni á svæðinu er því mikil. Í febrúar árið 2011 reið minni skjálfti yfir sem átti upptök nálægt Christchurch. 185 manns létust í þeim skjálfta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×