Erlent

Nefhjól Boeing 737-flugvélar brotnaði

Jakob Bjarnar skrifar
Umferð stöðvaðist á La Guardia-flugvellinum eftir slysið.
Umferð stöðvaðist á La Guardia-flugvellinum eftir slysið.
Nefhjól Boeing 737-flugvélar, í eigu Southwest-flugfélagsins, brotnaði í lendingu og vélin rann áfram eftir braut á nefinu á La Guardia-flugvellinum í New York.

Umferð stöðvaðist á flugvellinum í gær vegna óhappsins. 149 manns voru um borð en vélin var að koma frá Nashville. Farþegar og áhöfn fóru út um neyðarútganga. Tíu fengu að sögn minniháttar meiðsl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×