Erlent

Jörðin séð frá Satúrnusi

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Örin bendir á jörðina.
Örin bendir á jörðina. Mynd/AP
Bandaríska geimferðamistöðin NASA hefur birt myndir sem teknar er úr Cassini-geimfarinu, sem er á braut umhverfis Satúrnus í 1,4 milljarða kílómetra fjarlægð.

Jörðin sést reyndar aðeins sem örlítill depill. En þegar myndin er grannt skoðuð kemur í ljós að tunglið okkar sést einnig, aðgreint frá jörðinni.

Myndirnar voru teknar á föstudaginn var og höfðu starfsmenn NASA fyrirfram hvatt fólk til að horfa út í geiminn og veifa, því til stæði að taka myndir af okkur.

Þær eru nú komnar í fjölmiðla um heim allan, en þetta er í fyrsta sinn sem myndir birtast af jörðinni og tunglinu úr þetta mikilli fjarlægð.

Megintilgangurinn með myndatökunum er þó að rannsaka frekar hringi Satúrnusar og leita að fleiri tunglum, sem kynnu að vera á braut umhverfis Satúrnus.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×