Erlent

Borpallur logar

Eldur kom upp í gærkvöldi í gasborpalli í Mexíkóflóa. Borpallurinn er um 85 kílómetrum frá suðurströnd Louisiana.

Á fimmta tug starfsmanna voru fluttir á brott í flýti, eftir að ljóst var að gasleiðslur í pallinum láku. Nokkrum klukkutímum síðar braust eldurinn út.

Hann logar enn og hafa stjórnvöld ekki tjáð sig um það hvernig, eða hvenær  reynt verður að slökkva eldinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×