Erlent

Áhlaup gegn mafíunni á Ítalíu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Meira en hundrað manns voru handteknir og meðal þeirra voru læknar, lögfræðingar og kaupsýslumenn.
Meira en hundrað manns voru handteknir og meðal þeirra voru læknar, lögfræðingar og kaupsýslumenn.
Um 500 lögreglumenn réðust í morgun gegn mafíunni í Rómarborg og í Calabria-héraði í suðurhluta Ítalíu. Meira en hundrað manns voru handteknir og meðal þeirra voru læknar, lögfræðingar og kaupsýslumenn.

Hinir handteknu eru sagðir tilheyra þremur glæpasamtökum með mafíutengsl sem hafa verið atkvæðamikil í skipulagðri glæpastarfsemi á Ítalíu í mörg ár. Þá var lagt hald á um 200 milljón evrur, en það samsvarar um 32 milljörðum króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×