Erlent

Vandræðalegt viðtal vekur athygli

Lauren Green til vinstri, og Reza Aslan til hægri.
Lauren Green til vinstri, og Reza Aslan til hægri.
Viðtal sem birtist á bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox News á dögunum hefur vakið mikla athygli.

Fréttakonan Lauren Green er steinhissa, og trúir því varla, að músliminn Reza Aslan dirfist að skrifa bók um ævi Jesús. Það sé ekki við hæfi enda aðhyllist hann íslam.

Aslan er með fjórar gráður, eina í Nýja Testamentinu, og hefur stúderað Biblíuna í yfir tvo áratugi.

Í byrjun viðtalsins spyr hún hann, hvers vegna hann sé með svona mikinn áhuga á Jesú Kristi.

„Vegna þess að það er starf mitt sem fræðimaður. Ég er prófessor í trúabragðafræði. Ég vinn við þetta,“ svarar Aslan hissa.

En fréttakonan lætur sér ekki segjast og tönslast á því, án þess að segja það beint, að það sé ekki við hæfi að múslimi sé að skrifa um ævi Jesús.

„Ég vil undirstrika það. Ég er sagnfræðingur. Ég erPhD í trúabragðafræði. Ævi hans er hluti af sögunni,“ segir hann.

Og þarf að sannfæra fréttakonuna að bókin sé skrifuð á fræðilegum grundvelli og það komi málinu ekkert við að hann sé múslimi.

Þetta kostulega viðtal má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×