"Bandarísk yfirvöld líta á þegna sína sem óvini" 25. júní 2013 17:54 "Sannleikurinn eru svik í heimsveldi lyganna," segir Ron Paul. Hann hefur verið mjög gagnrýninn á ríkisstjórn Barack Obama. Mynd/ AP
Dr. Ron Paul segir í stöðuuppfærslu á Facebook að svo virðist sem bandarísk stjórnvöld líti á þegna sína sem óvini ríkisins. Hann er fyrrum öldungadeildarþingmaður og sóttist eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins til forseta Bandaríkjanna árið 2012 Dr. Paul segir að þetta sé vegna þess að Edward Snowden hafi verið ákærður fyrir brot á njósnalöggjöf í Bandaríkjunum. Í stöðuuppfærslunni segir hann að skilningur sinn á njósnum sé sá að njósnir feli í sér að leyndarmálum eða trúnaðarupplýsingum ríkisins sé deilt með óvinum þess. Í ljósi þess að Snowden hafi lekið upplýsingum um persónunjósnir stjórnvalda til bandarískra þegna og hafi verið ákærður fyrir njósnir telur Paul að það feli í sér að yfirvöld líti svo á að þegnar landsins séu óvinir þess.Mynd/ Af FacebookHefur staðið við bakið á SnowdenRon Paul hefur fagnað því að Edward Snowden hafi lekið upplýsingum um persónunjósnir bandarískra stjórnvalda. Hann hefur sagt að bandaríska þjóðin eigi að vera „þakklát fyrir menn á borð við Edward Snowden... sem vekja athygli á óréttlætinu sem á sér stað þrátt fyrir áhættuna sem fylgir því að stíga fram." Ljóst er að Dr. Paul hefur verið í algjörri andstöðu við flesta aðra stjórnmálamenn vestanhafs, en utanríkisráðherra Bandaríkjanna, John Kerry, hefur sagt Snowden vera svikara. Hann segir Snowden vera „á flótta undan réttlætinu," enda sé hann „einstaklingur sem ógnaði landi sínu." Þá er einsýnt að mál Snowdens er farið að valda núningi í samskipti Bandaríkjanna við önnur ríki. Til að mynda sagði Vladimir Putin, forseti Rússlands, að ásakanir bandaríkjamanna um að þeir héldu hlífiskyldi yfir Snowden væru „bull og vitleysa."
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Játar innbrot í búin Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira