Fyrstur til að spila eftir að hafa komið út úr skápnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2013 13:15 Robbie Rogers. Mynd/NordicPhotos/Getty
Bandaríski knattspyrnumaðurinn Robbie Rogers vakti heimsathygli í febrúar þegar hann kom út úr skápnum og tilkynnti að hann væri samkynhneigður. Nú ætlar hann fyrstur fótboltamanna að spila í bandarísku MLS-deildinni eftir að hafa komið út úr skápnum. Los Angeles Galaxy, gamla félagið hans David Beckham, samdi við Robbie Rogers en hann hefur verið að æfa með félaginu undanfarnar vikur. Bruce Arena, þjálfari Galaxy, tók honum vel og hann fékk líka mikinn stuðning frá langtímavini sínum Landon Donovan. Robbie Rogers þótti einn af efnilegustu knattspyrnumönnum Bandaríkjanna. Hann varð háskólameistari með Maryland 2005 og þremur árum síðan vann hann bandaríska meistaratitilinn með Columbus Crew auk þess að vera valinn í úrvalslið tímabilsins. Rogers tilkynnti að hann væri hættur í fótbolta um leið og hann gaf það út að hann væri samkynhneigður af því að hann vildi ekki taka þátt í sirkus sem hann var viss um að kæmi í kjölfarið. Rogers segist hafa áttað sig á mikilvægi þess að hann héldi sínu striki inn á vellinum þegar hann ræddi við hóp barna í Portland í apríl. „Mér leið eins og heigul. Ég er 25 ára gamall og hef tækifæri á því að vera fyrirmynd og rödd í baráttu samkynhneigða," sagði Rogers við USA Today. Rogers ætlar ekki bara að spila með Galaxy því hann hefur einnig sett stefnuna á að komast í bandaríska landsliðið fyrir HM í Brasilíu á næsta ári. Miðað við fjölmiðlaáhugann sem er líklegur til að fylgja Rogers er kannski hægt að segja að eftirmaður David Beckham hjá Galaxy-liðinu sé fundinn. „Það er æðislegt að fá að taka þátt í því að breyta þjóðfélaginu," sagði Rogers.
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Fleiri fréttir Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM FIFA: Fær ekki að dæma á HM vegna komubannsins Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Gakpo skoraði tvö mörk í fimmtugasta landsleiknum Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Van Persie rekinn frá uppeldisfélaginu Svona var fundur Íslands fyrir leikinn við heimsmeistarana Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Löggan þorði ekki að þiggja miða HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Sjá meira