Fyrstu tveir heimaleikirnir unnust í fyrsta sinn í tíð Óla Kristjáns Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2013 18:15 Ólafur Kristjánsson, þjálfari Blika. Mynd/Pjetur
Blikar hafa unnið tvo 4-1 sigra í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum í Pepsi-deild karla í sumar og um leið markað tímamót í þjálfaratíð Ólafs Kristjánssonar í Kópavoginum. Þetta er í fyrsta sinn sem Blikar vinna tvo fyrstu heimaleiki sína síðan að Ólafur tók við liðinu á miðju tímabili 2006. Blikar höfðu fyrir þetta tímabil aðeins náð að vinna 3 af 12 fyrstu tveimur heimaleikjum sínum en náðu nú sex stigum og átta mörkum út úr leikjum sínum á móti Þór og ÍA. Elfar Árni Aðalsteinsson (3 mörk) og Nichlas Rohde (2 mörk) hafa skorað í báðum þessum leikjum en Elfar Árni skoraði tvö og lagði upp eitt í sigrinum á Skagamönnum í gær. Það stefndi reyndar í áframhald á hefð Blika að tapa stigum í fyrstu tveimur heimaleikjunum því Skagamenn voru 1-0 yfir þegar minna en tíu mínútur voru eftir af leiknum í gær. Blikar hrukku þá í gang og nýttu sér algjört hrun Skagamanna. Blikar skoruðu fjögur mörk frá 82. til 89. mínútu og tryggðu sér stórsigur.Fyrstu tveir heimaleikir Blika síðan að Ólafur Kristjánsson tók við:- tók við á miðju tímabili 20062007 - 1 stig, markatala: 2-3 0-1 tap fyrir Fylki 2-2 jafntefli við Keflavík2008 - 1 stig, markatala: 3-6 0-0 jafntefli við Þrótt 3-6 tap fyrir Grindavík2009 - 3 stig, markatala: 4-4 2-1 sigur á Þrótti 2-3 tap fyrir FH2010 - 1 stig, markatala: 2-3 0-1 tap fyrir Keflavík 2-2 jafntefli við Fram2011 - 3 stig, markatala: 4-4 2-3 tap fyrir KR 2-1 sigur á Grindavík2012 - 3 stig, markatala: 1-1 0-1 tap fyrir ÍA 1-0 sigur á Val2013 - 6 stig, markatala: 8-2 4-1 sigur á Þór 4-1 sigur á ÍA
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu Sjá meira