Bale kom enn á ný til bjargar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2013 00:01 Gareth Bale. Mynd/AFP
Gareth Bale var enn á ný hetja Tottenham-liðsins í dag þegar hann skoraði stórglæsilegt sigurmark fjórum mínútum fyrir leikslok þegar Tottenham vann Southampton 1-0 á heimavelli sínum á White Hart Lane. Bale hefur gert út um ófáa leiki Tottenham á þessu tímabili. Gylfi Þór Sigurðsson fékk að spila síðustu tuttugu mínúturnar í leiknum en hann kom inn á fyrir Clint Dempsey á 72. mínútu leiksins. Andre Villas-Boas setti þá meira púður í sóknarleikinn sem skilaði sér í lokin en fram að því var sóknarleikur Tottenham liðsins bitlaus. Gareth Bale skoraði markið sitt með þrumuskoti fyrir utan teig eftir að hafa einleikið inn að markinu frá hægri kantinum. Artur Boruc, markvörður Southampton, réð ekki við þessa neglu. Það er búið að vera hlaða verðlaunum á Gareth Bale að undanförnu og hann sýndi af hverju með því að skora þetta magnaða mark sem getur verið eitt af þeim mikilvægari hjá Tottenham á tímabilinu. Stigin þrjú skila Tottenham upp í fjórða sætið með jafnmörg stig og Chelsea sem er ofar á markatölu og einu stig meira en Arsenal. Arsenal á leik inni á móti Queens Park Rangers á eftir og Chelsea mætir Manchester United á morgun.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Sjá meira