Liverpool blómstraði í fjarveru Suarez Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. apríl 2013 01:29
Liverpool gerði sér lítið fyrir og vann 6-0 stórsigur á Newcastle á útivelli í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Luis Suarez tók út sinn fyrsta leik í tíu leikja banninu sem hann fékk fyrir að bíta Branislav Ivanovic, leikmann Chelsea, um síðustu helgi. Um fátt annað hefur verið rætt í knattspyrnuheiminum undanfarna daga en leikmenn Liverpool sýndu í dag hversu megnugir þeir geta verið án Suarez. Daniel Agger opnaði markaveisluna strax á þriðju mínútu með skallamarki. Jordan Henderson bætti öðru eftir laglega skyndisókn við áður en fyrri hálfleikur var flautaður af. Daniel Sturridge, sem byrjaði í fremstu víglínu í fjarveru Suarez, skoraði tvö mörk á fyrsta stundarfjórðungi síðari hálfleiks. Varamaðurinn Fabio Borini bætti fimmta markinu við og Henderson svo því sjötta, beint úr aukaspyrnu. Newcastle lék hörmulega í dag og Matieu Debuchy bætti gráu á svart þegar hann fékk rautt spjald fyrir sína aðra áminningu á 75. mínútu. Henderson skoraði svo úr aukaspyrnunni. Liverpool er nú með 54 stig í sjöunda sæti deildarinnar en Newcaastle er í sextánda sæti með 37 stig. Liðið er nú fimm stigum frá fallsæti.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Sjá meira