Wolves á leið í C-deildina eftir sárt tap Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. apríl 2013 16:24 Stuðningsmenn Wolves hlupu inn á völlinn í leikslok og létu leikmenn heyra það. Nordic Photos / Getty Images
Björn Bergmann Sigurðarson var í byrjunarliði Wolves sem varð af gríðarlega mikilvægum stigum í botnbaráttu ensku B-deildarinnar í dag. Wolves tapaði fyrir Burnley, 2-1, og er nú þremur stigum frá öruggu sæti þegar að aðeins ein umferð er eftir. Wolves á enn möguleika á að bjarga sér en þarf að vinna sigur á Brighton á útivelli um næstu helgi og treysta á að Barnsley tapi fyrir Huddersfield á sama tíma. Um 500 stuðningsmenn Wolves hlupu inn á völlinn í leikslok til að láta í ljós óánægju sína og mótmæla sérstaklega Steve Morgan, eiganda félagsins. Barnsley vann afar mikilvægan og óvæntan sigur á Hull, 2-0, á heimavelli í dag og tók þar með stórt skref í átt að bjarga sæti sínu. Hull hefur gefið eftir í síðustu leikjum og aðeins fengið eitt stig af níu mögulegum. Hull er þó enn í öðru sæti deildarinnar og er nú með eins stigs forystu á Watford fyrir lokaumferðina um næstu helgi. Björn Bergmann og félagar geta þó huggað sig við það að Brighton hefur að litlu að keppa í lokaumferðinni. Liðið er öruggt um sæti í umspilskeppni deildarinnar um sæti í ensku úrvalsdeildinni en þangað fara liðin sem lenda í 3.-6. sæti deildarinnar. Björn Bergmann var tekinn af velli á 59. mínútu en varamaður hans skoraði eina mark Wolves undir lok leiksins. Deildarmeistarar Cardiff gerðu 1-1 jafntefli við Bolton í dag. Aron Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn fyrir Cardiff en Heiðar Helguson er frá vegna meiðsla.
Enski boltinn Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Sjá meira