Ferð til Barbados bjargi liðið sér frá falli Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. apríl 2013 08:30
Dave Whelan, eigandi og stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins Wigan, ætlar að bjóða leikmönnum félagsins í sólarlandaferð takist liðinu að halda sæti sínu í deildinni. Wigan mætir Millwall í undanúrslitum enska bikarsins á Wembley á laugardaginn. Millwall leikur í ensku b-deildinni og því eru möguleikar Wigan á að komast í úrslitaleikinn afar góðir. Whelan leggur þó áherslu á að þótt enski bikarinn sé skemmtilegur skipti öllu máli að halda sæti sínu í deildinni. Spili þar inn í nýr sjónvarpsréttarsamningur sem tryggir félögunum enn meira fjármagn á næstu árum. „Það skiptir meira máli að halda sætinu í úrvalsdeildinni en að vinna undanúrslitin í bikarnum. Ég hef því lofað leikmönnunum fríi á Barbados bjargi liðið sér frá falli," hafa enskir fjölmiðlar eftir Whelan. Whelan segir að enski bikarinn hafi haft mikla þýðingu þegar hann var yngri. „En þú færð svo mikla peninga í úrvalsdeildinni. Það gerir fallbaráttuna þeim mun mikilvægari," segir Whelan. Wigan situr sem stendur í 18. sæti deildarinnar með 31 stig. Liðið hefur lakari markatölu en Sunderland sem hefur jafnmörg stig. Wigan hefur haldið sér í úrvalsdeildinni óslitið, oft með ótrúlegum hætti, frá árinu 2005. Jöfnunarmark Shaun Maloney á elleftu stundu gegn QPR um helgina var í takt við hið árlega Wigan vor þegar liðið bætir leik sinn og bjargar sér frá falli. Markið glæsilega má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir "Mestu vonbrigði ferilsins" Harry Redknapp, stjóri QPR, gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir 1-1 jafntefli sinna manna gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. 8. apríl 2013 07:38 QPR missti af sigri á síðustu sekúndunum Harry Redknapp og lærisveinar hans í Queens Park Rangers misstu af sigri á síðustu sekúndunum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Wigan í sannkölluðum sex stiga leik í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. 7. apríl 2013 14:45 Mest lesið Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Handbolti Tekur Ómar hlutverki fyrirliða Íslands of alvarlega? Handbolti Íslendingar bregðast við stórtíðindum kvöldsins: „Takk fyrir Jesú“ Handbolti Skýrsla Henrys: Andlegt gjaldþrot enn og aftur Handbolti „Snorri á alla mína samúð“ Handbolti Íslenskur sigur á morgun gulltryggir sæti í undanúrslitum Handbolti Dagskráin í dag: Deildarkeppni Meistaradeildarinnar lýkur Sport Segir að hrokinn hafi orðið Frökkum að falli Handbolti Lærisveinar Arons úr leik eftir tap í framlengdum leik Handbolti Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira
"Mestu vonbrigði ferilsins" Harry Redknapp, stjóri QPR, gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir 1-1 jafntefli sinna manna gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. 8. apríl 2013 07:38
QPR missti af sigri á síðustu sekúndunum Harry Redknapp og lærisveinar hans í Queens Park Rangers misstu af sigri á síðustu sekúndunum þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Wigan í sannkölluðum sex stiga leik í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. 7. apríl 2013 14:45