David Luiz fyrirgefur Aguero rassatæklinguna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2013 09:19
David Luiz hjá Chelsea hefur fyrirgefið Sergio Aguero hjá Manchester City fyrir það hann kallar „fimm sekúndur af reiði" en argentínski framherjinn komst upp með það að traðka á rassi Brasilíumannsins í í undanúrslitaleik enska bikarsins á Wembley í gær. Atvikið gerðist undir lok leiksins eftir að þeir félagar fóru í tæklingu. Chris Foy, dómari leiksins, missti af því þegar Aguero lét báða sóla vaða í afturendann á David Luiz. Það er hægt að sjá myndband af atvikinu með því að smella hér fyrir ofan. „Ég sá ekki alveg hvað gerðist því ég lá á bakinu en margir hafa nefnt þetta við mig," sagði David Luiz og bætti við: „Ég fann samt aðeins fyrir þessu. Stundum missa menn sig í fimm sekúndur þegar þeir reiðast og gera sig þá seka um hluti sem þeir ætluðu aldrei að gera. Ég held að þetta hafi verið þannig," sagði David Luiz. „Aguero er frábær leikmaður en hann verður að koma hreint fram og segja að hann sé ekki hrifinn af ljótum tæklingum. Þetta voru samt bara fimm sekúndur af reiði og ég fyrirgef honum," sagði David Luiz. Það má einnig sjá myndband af mörkunum úr leiknum með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið „Feginn að þú lifðir krabbameinið af svo þú gætir séð skítaliðið þitt fara niður“ Handbolti Farin frá Braga eftir aðeins hálft ár Fótbolti „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Íslenski boltinn Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Enski boltinn Segir dómarana bara hafa verið að giska Enski boltinn Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Enski boltinn Segir Ísland eiga tvo af tíu bestu í heimi Handbolti Mest lesið í innlenda sportinu: Danskar bullur, oddaleikur á Króknum og miskátir hlauparar Sport Alls ekki síðasti leikur Semenyo Enski boltinn Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Enski boltinn Fleiri fréttir Alls ekki síðasti leikur Semenyo Segir dómarana bara hafa verið að giska Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Fékk á sig víti í mögulegum kveðjuleik „Þetta er rebbabragð sem ég vissi nú reyndar ekki að hann kynni“ Liðið sem gerir stólpagrín að xG Þjálfari Liverpool í föstum leikatriðum látinn fara „Fróðari menn segja að maður eigi ekki að láta tilfinningarnar ráða“ „Ég hélt ég myndi deyja“ Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Vildi ekki láta undan pressu frá fjölmiðlamönnum Man Utd samdi við fyrrum liðsfélaga Glódísar Perlu hjá Bayern Gefur í skyn að Arsenal opni veskið í janúar „Einn mesti hugsuðurinn í boltanum“ Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjá meira