"Van Persie var aldrei á leiðinni til City" Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. apríl 2013 11:25 Van Persie fagnar sigurmarki sínu í fyrri leiknum gegn City. Nordicphotos/Getty
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur sett ofan í Roberto Mancini, kollega sinn hjá grannliðinu City. Ferguson segir að Hollendingurinn hafi aldrei verið á leiðinni til félagsins. City sækir United heim í stórleik 31. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar sem sýndur er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 í kvöld. Flestir telja United þegar vera búið að tryggja sér titilinn en liðið vann dramatískan sigur í fyrri viðureign liðanna á Etihad-leikvanginum. Mancini lét hafa eftir sér í viðtali í síðustu viku að fimmtán stiga forskot United í deildinni væri Robin Van Persie að þakka. Van Persie hefur skorað 19 mörk í deildinni í vetur eftir 24 milljóna punda söluna frá Arsenal í ágúst. Mancini var einnig á höttunum eftir Hollendingnum sem ákvað á endanum að ganga í raðir Rauðu djöflanna. Ferguson hefur stráð salti í sár Mancini með ummælum sínum. Aðspurður hvort City hefði verið sterkara með Van Persie innanborðs sagði Ferguson: „Menn geta velt því fyrir sér en hann hefði aldrei farið til City." Van Persie hefur lítið skorað undanfarnar vikur og á sama tíma hefur United helst úr lestinni bæði í enska bikarnum og Meistaradeildinni. Í báðum keppnum fékk Van Persie úrvalsfæri á ögurstundu sem misfórust. „Það er ekki bara Van Persie að þakka hve vel okkur hefur gengið. En jafnvel þegar hann skorar ekki spilar hann vel," segir Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira