Hannes: Menn eins og Gylfi gera gæfumuninn Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Ljubljana skrifar 22. mars 2013 21:45 Hannes Þór Halldórsson Mynd/Vilhelm
Hannes Þór Halldórsson átti flottan leik í marki íslenska liðsins í 2-1 sigri á Slóveníu í undankeppni HM 2014 í kvöld. „Þetta var stór og mikill sigur. Gríðarlega mikilvægur og kemur okkur í góða stöðu," sagði Hannes eftir leikinn í kvöld. „Nú er þetta í okkar höndum og við getum núna gert harða atlögu að öðru sætinu. Þetta er ekki staða sem landsliðið hefur ekki verið í oft áður." Ísland spilaði þó ekki vel í fyrri hálfleik og var 1-0 undir að honum loknum. Hannes segir að þjálfarinn Lars Lagerbäck hafi verið rólegur í hálfleiknum. „Hann var ekki að láta okkur heyra það þó svo að við hefðum átt það skilið. Við vorum mjög slakir í fyrri hálfleik - vorum taugaveiklaðir, spiluðum boltanum illa og langt frá mönnunum." „Það komu svo ferskir menn inn á sem breyttu ýmsu. Við erum svo með menn eins og Gylfa Þór sem getur gert ótrúlega hluti. Það gerir gæfumuninn í svona leik." Slóvenar sóttu stíft að marki Íslands síðustu tíu mínútur leiksins en strákarnir héldu ró sinni allt til loka. „Þetta var eðlilegur gangur leiksins, miðað við að við vorum á útivelli og marki yfir. Þá fellur maður aðeins til baka og reynir að verja forskotið." „En við vorum þéttir fyrir og hleyptum þeim ekki í nein opin færi. Það var svo ótrúlega sætt þegar dómarinn flautaði leikinn af. Þetta eru sætustu sigrarnir." Hannes hefur staðið sig vel með landsliðinu og sýndi enn og aftur í kvöld að hann á fullt erindi í atvinnumennskuna. „Það verður bara að koma í ljós hvort eitthvað gerist í mínum málum. Ég er hættur að spá í hvað þurfi til að komast út. Það hefur ýmislegt verið í spilunum en ekkert gengið. Kannski hjálpaði þetta eitthvað til en þangað til að eitthvað gerist mun ég einbeita mér að KR."
Fótbolti Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn Åge Hareide látinn Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti Dagskráin í dag: Píla og Álftanes með nýjan þjálfara Sport Bardagakappi drukknaði á Amazon-svæðinu Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Fleiri fréttir Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Sjá meira