Erlent

Hjónaband samkynhneigðra handan við hornið

Stuðningsmenn frumvarpsins söfnuðust saman við þinghúsið í London í kvöld.
Stuðningsmenn frumvarpsins söfnuðust saman við þinghúsið í London í kvöld. Nordicphotos/Getty
Frumvarp sem heimilar hjónabönd samkynhneigðra var samþykkt í neðri deild breska þingsins í kvöld.

400 þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu en 175 þingmenn gegn því. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst breytingunni sem mikilvægu skrefi í átt að sterkara samfélagi.

Frumvarpið hlaut mikinn stuðning þingmanna úr Verkamannaflokknum og úr flokki frjálslyndra demókrata. Fyrrnefndi flokkurinn er í stjórnarandstöðu. Íhaldsflokkur Cameron skiptist hins vegar í fylkingar varðandi málið.

Málið á eftir að fara í aðra atkvæðagreiðslu en ólíklegt má telja að nógu margir þingmenn skipti um skoðun til þess að fella frumvarpið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×